Logo

Icelandic PUBG League

Nýjustu fréttir

Fimmta og síðasta mót PUBG GameTivi deildar vors 2026 er lokið

Fimmta og síðasta mót GameTivi-deildarinnar vorið 2026 fór fram í gærkveldi. Team-Iceland sigraði mótið, en það voru PNGR sem stóðu uppi sem heildarsigurvegarar deildarinnar.

Þetta var síðasta mótið af fimm í deildarkeppninni þar sem baráttan var hörð um sæti í topp 16. Lokastaðan má nú finna í GameTivi deildinni.

Topp 16 liðin hafa nú tryggt sér sæti á Íslandsmótinu sem fer fram 3. og 10. maí.

Hægt er að horfa á mótið í heild sinni hér á twitch.tv/gametiviis.

Gefið út 2026-04-13

GameTivi deildin – 5. mót af 5 fer fram 12. apríl

Fimmta mót GameTivi-deildarinnar 2026 fer fram sunnudaginn 12. apríl kl. 20:00.

Þetta verður fimmta mótið og þá jafnframt lokamótið í deildarkeppninni, þar sem lið safna stigum yfir tímabilið.

Nú verður spilað uppá sigur í deild og fá efstu fjögur sætin verðlaun frá styrktaraðilum. Að lokinni deildarkeppni komast efstu 16 lið áfram í úrslitakeppni / Íslandsmeistaramótið. Og er því til mikils að vinna.

Gefið út 2026-04-03

GameTivi deildin – 4. mót af 5 fer fram 22. mars

Fjórða mót GameTivi-deildarinnar 2026 fer fram sunnudaginn 22. mars kl. 20:00. Spilað verður í FPP og kvöldið keyrt í hefðbundnu keppnisfyrirkomulagi.

Þetta er fjórða mótið af fimm í deildarkeppninni, þar sem lið safna stigum yfir tímabilið. Hvert kvöld telst þó sem sjálfstæð keppni og engin skuldbinding er til að taka þátt í fleiri mótum en hentar hverju sinni.

Að lokinni deildarkeppni komast efstu 16 lið áfram í úrslitakeppni / Íslandsmeistaramót.

Gefið út 2026-03-07