Annað mót GameTivi-deildarinnar 2026 fer fram sunnudaginn 8. febrúar kl. 20:00. Spilað verður í FPP og kvöldið keyrt í hefðbundnu keppnisfyrirkomulagi.
Þetta er annað mót af fimm í deildarkeppninni, þar sem lið safna stigum yfir tímabilið. Hvert kvöld telst þó sem sjálfstæð keppni og engin skuldbinding er til að taka þátt í fleiri mótum en hentar hverju sinni.
Að lokinni deildarkeppni komast efstu 16 lið áfram í úrslitakeppni / Íslandsmeistaramót.
